5 flokkur rúlar!!!

5 flokkur rúlar!!!

02.06.2009 16:30:32 / tindastoll5fl

Breyttur æfingatími, nýr þjálfari og fyrsti leikur á fimmtudag

Núna er sumarið greinilega komið. Styttist hratt í fyrsta leik en hann verður næsta fimmtudag kl. 17:00 hjá A-liði og 17:50 hjá B-liði. Liðin verða kynnt á miðvikudag eða fimmtudag á æfingu hjá stelpunum.
Ég er núna hætt að þjálfa og er nýr þjálfari búinn að taka við. Simmi verður yfirþjálfari yngri flokka í sumar en honum til aðstoðar verður Arnar Skúli, Kristveig og Sunna. Æfingarnar eru á sama tíma hjá strákum og stelpum í sumar, eins og í fyrra.

Æfingar verða hér með á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 10:10.
Ég vil vekja athygli á því að æfingin á morgun er upp á Nöfum!

Ég mun auðvitað fylgjast með stelpunum í sumar og mun vera á leiknum á fimmtudag til að aðstoða nýja þjálfara með stelpurnar :)

Lokaskemmtun fyrir veturinn verður fljótlega og mun ég auglýsa hana þegar hún verður.

Kveðja,
Inga Jóna

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2009 19:43:35 / tindastoll5fl

Æfingar á morgun og sumar

Þá er Sumartím að fara í gang aftur. Æfingin á morgun er kl. 15:00 (þrjú) eins og ég sagði á föstudag! Það er fyrsti leikur í Íslandsmóti á fimmtudag og því mikilvægt að allar mæti. Mikilvægt að láta þetta berast til allra sem hafa verið að æfa í vetur og þeirra sem vilja byrja að æfa.

Á miðvikudag byrja æfingar eins og þær munu vera hjá SumarTím og þið munuð fá miða heim á morgun varðandi þær æfingar.

Kveðja,
Inga Jóna

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2009 18:59:08 / tindastoll5fl

Leikir í sumar

Hérna eru leikirnir sem þið munuð spila í sumar. Það gætu orðið einhverjar breytingar en nýr þjálfari mun láta ykkurvita ef það verða breytingar.
Fyrsti leikur er næsta fimmtudag hérna á Sauðárkróki.

fim. 04. jún 17:00 5. flokkur kvenna A-lið E Sauðárkróksvöllur Tindastóll KA  
2 fim. 04. jún 17:50 5. flokkur kvenna B-lið E Sauðárkróksvöllur Tindastóll KA  
 
3 fös. 12. jún 17:00 5. flokkur kvenna B-lið E Sauðárkróksvöllur Tindastóll KA 2  
 
4 fim. 18. jún 17:00 5. flokkur kvenna A-lið E Siglufjarðarvöllur KS/Leiftur Tindastóll  
 
5 fös. 19. jún 17:00 5. flokkur kvenna B-lið E Þórsvöllur Þór 2 Tindastóll  
 
6 þri. 23. jún 17:00 5. flokkur kvenna A-lið E Sauðárkróksvöllur Tindastóll Völsungur  
 
7 mið. 01. júl 17:00 5. flokkur kvenna A-lið E Þórsvöllur Þór Tindastóll  
8 mið. 01. júl 17:50 5. flokkur kvenna B-lið E Þórsvöllur Þór Tindastóll  
 
9 fim. 09. júl 17:00 5. flokkur kvenna A-lið E KA-völlur KA Tindastóll  
10 fim. 09. júl 17:50 5. flokkur kvenna B-lið E KA-völlur KA Tindastóll  
 
11 mán. 13. júl 16:00 5. flokkur kvenna B-lið E KA-völlur KA 2 Tindastóll  
 
12 mið. 12. ágú 17:00 5. flokkur kvenna A-lið E Sauðárkróksvöllur Tindastóll KS/Leiftur  
13 mið. 12. ágú 17:50 5. flokkur kvenna B-lið E Sauðárkróksvöllur Tindastóll Þór 2  
 
14 mán. 17. ágú 17:00 5. flokkur kvenna A-lið E Húsavíkurvöllur Völsungur Tindastóll  
 
15 fös. 21. ágú 17:00 5. flokkur kvenna A-lið E Sauðárkróksvöllur Tindastóll Þór  
16 fös. 21. ágú 17:50 5. flokkur kvenna B-lið E Sauðárkróksvöllur Tindastóll Þór


Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2009 17:57:43 / tindastoll5fl

Páskafrí

Stelpurnar eru komnar í páskafrí til fimmtudagsins 16. apríl. Ég vil hvetja stelpurnar til þess að fara út að hlaupa eða hreyfa sig eitthvað í fríinu. Um að gera að nota tækifærið og fara á skíði eða eitthvað annað sniðugt.

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2009 13:18:02 / tindastoll5fl

Laugardagsæfingar hættar

Það hafa flestar stelpurnar sem mæta á æfingar fengið miða heim varðandi laugardagsæfingar, hvort þær vilja æfingu eða ekki. Þær hafa einnig skilað mér inn miðunum. Mikill meirihluti vill hætta með laugardagsæfingar og hafa föstudagsæfingar í staðin. Laugardagsæfingar eru því hættar frá og með núna og verða æfingar á föstudögum kl. 13:00-14:00 á gervigrasinu. Ef það verður snjór á gervigrasinu verður samt æfing í formi útihlaups í staðin.

Æfingar verða því á þessum dögum hér eftir:
Mánudagar kl. 15:55-16:50 Reiðhöll
Þriðjudagar kl. 17:30-18:30 Gervigras
Fimmtudagur kl. 15:25-16:05 Íþróttahús
Föstudagur kl. 13:00-14:00 Gervigras

Æfingin í dag, þriðjudag, fellur niður vegna leikrits hjá stelpunum sem er á sama tíma og æfing á að vera.

Ég vil einnig þakka fyrir frábært Goðamót um helgina. Stelpurnar stóðu sig allar mjög vel og baráttan var mjög mikil hjá öllunum stelpunum, allan tímann.

Kveðja
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2009 17:35:27 / tindastoll5fl

Leikjaplanið komið inn

Þá er leikjaplanið komið fyrir Goðamótið um næstu helgi. Það byrjar mun seinna en strákamótið en fyrsti leikur hjá Tindastól er kl. 18:20. Hægt er að skoða leikjaplanið á heimasíðu Goðamóts, http://godamot.blog.is/blog/godamot/, en það er einn leikur spilaður á föstudag.

Það hefur aðeins eitt foreldri sem hefur látið vita að geti gist, og það er þá bara á laugardag. Það kostar 3500 kr fyrir fararstjóra/ þjálfara sem er hálft gjald. Strákarnir deildu því sín á milli (500 kr. á mann auka) en þar sem mjög fáir geta gist með krökkunum þá mun ég gista með þeim.

Það verður lagt af stað á föstudag kl. 16:00 og er mæting í anddyri íþróttahússins þá. Það á að borga þar fyrir mótið.

Ef það eru einhverjar spurninga þá endilega hringja í mig.
Hlakka tl að sjá allar með góða skapið :)

Inga Jóna

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2009 16:48:40 / tindastoll5fl

Goðamót 2009

Stelpurnar fengu miða heim í dag fyrir Goðamótið sem fer fram 13. -15. mars í Boganum á Akureyri. Ef einhver fékk ekki miða þá getur hún haft samband við mig til að fá miða til að skrá sig á mótið.
Það á að skila miðanum næsta mánudag í Reiðhöllinni eða þá hafa samband við mig, eins og ég sagði við stelpurnar.
Heimasíða Goðamótsins er eftirfarandi :http://www.godamot.blog.is/blog/godamot/ Þar koma fram allar upplýsingar um mótið og einnig eru skráð inn úrslitin þar.
Ég hef ekki enn fengið upplýsingar um leikjaniðurröðun en læt ykkur vita um leið og ég fæ að vita hana.

Einnig fengu þær miða heim varðandi laugardagsæfingarnar. Það hefur verið mjög léleg mæting á þær og því kom upp sú hugmynd að breyta æfingatímanum. Því miður fáum við ekki annan tíma í íþróttahúsinu en getum verið á gervigrasinu. Vil ég biðja foreldra að svara því á miðanum hvort þeir vilji hætt með laugardagsæfingar og hvort þið viljið æfingu á föstudögum í staðin. Það yrði þá strax eftir skóla hjá stelpunum.

Það var foreldrafundur síðasta þriðjudag, 3.mars. Þar var ákveðið á hvaða mót við skyldum fara næsta sumar.
Þau eru eftirfarandi:
Landsbankamót 27.-28. júní
Símamót 16.-19. júlí
Unglingalandsmót Verslunarmannahelgi
Króksmót/Pæjumót á Siglufirði 8.-9. ágúst (Pæjumót byrjar 7. ágúst.)

Ef það næst í lið á bæði Króksmót og Pæjumót þá verður sent lið á báða staði.

Kveðja,
Inga Jóna


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2009 18:29:54 / tindastoll5fl

Íslandsmótið innanhúss

Þá er komin dagsetning á mótið sem var frestað. En stelpurnar áttu að fá miða heim í morgun en þar sem það mættu mjög fáar, eða 2 stelpur, þá fengu fáar miða og vona ég að þetta skili sér til sem flestra. Hinar fá miða á mánudag. En mótið verður næsta miðvikudag, 28. janúar, og byrjar kl 19:00. Það er tími sem við ákváðum með KS en þetta verður búið ekki seinna en kl. 20:00 og þá lagt af stað heim. Ég vona að sem flestar komi en eins og áður kom fram eru bara 2 lið að keppa, Tindastóll og KS. Það verða spilaðir 2 leikir í Íslandsmótinu en einnig verða æfingaleikir meðan tími gefst til. Þannig að þær sem spila lítið í Íslandsmóts leikjunum spila meira í æfingaleikjunum.
Það þarf að láta mig vita hverjar komast í síðastalagi á þriðjudag og einnig hvaða foreldrar geta keyrt til Siglufjarðar.
Það er síðan mæting í Vallarhúsið kl. 17:00 og farið á Siglufjörð.

Ég vona ég sjái sem flestar á æfingu á mánudag þannig að allar fái miða heim varðandi þetta mót.

Einnig hafa margar verið að spyrja mig um Goðamótið en við erum skráðar með lið þar. Það mót verður haldið í mars og þær fá upplýsingar um það um leið og nær dregur mótinu.

Kveðja,
Inga Jóna

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.01.2009 23:13:18 / tindastoll5fl

Ekki æfing næsta fimmtudag

Næsta fimmtudag, 22.janúar, verður ekki æfing. Það er innanhússmót Grunnskólanna á vegum UMSS í Varmahlíð og verða mjög margar stelpur þar að keppa. Því verður ekki æfing, því áætluð heimakoma af mótinu er í kringum fjögur.

Æfingar næstu laugardag koma til með að vera úti á gervigrasinu vegna þess að íþróttahúsið er upptekið. Ég geri ráð fyrir að næsta innanhússæfing sé 8.febrúar og síðan ekki fyrr en í lok febrúar. Það gæti orðið innanhúss æfingar þess á milli og því vil ég biðja ykkur stelpur að koma með bæði föt til að vera inni og úti. Æfingar munu því ekki falla niður þó að íþróttahúsið sé upptekið.

Það er ekki komin dagsetning fyrir Íslandsmótið innanhúss ennþá, en vonandi fer það allt að skýrast fljótlega og læt ég ykkur vita um leið og ég fæ dagsetningu á það mót.

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2009 14:13:56 / tindastoll5fl

Varðandi Íslandsmótið

Eins og ég tilkynnti öllum í gærkvöldi þá var ákveðið að fresta Íslandsmótinu innanhúss sem átti að vera í morgun. Liðin sem áttu að vera með okkur í riðli fyrir utan KS hafa skráð sig úr keppni og því eru bara 2 lið eftir, Tindastóll og KS. Því var ákveðið að fresta þessu þar sem veðurspáin var ekki góð. Við eigum eftir að finna dagsetningu fyrir þessa leiki en hún verður fljótlega og læt ég stelpurnar fá miða heim um leið og ég veit dagsetninguna. Það verða þá spilaðir 2 leikir á móti KS.

Einnig vil ég láta ykkur vita að núna í janúar er mikið um að vera í íþróttahúsinu á laugardögum. Því vil ég biðja stelpurnar að koma með föt til að vera á gervigrasinu líka, til öryggis, ef ég hef ekki náð að láta allar vita. Æfingar munu því ekki falla niður þó íþróttahúsið sé upptekið heldur verða þær á gervigrasinu í staðin.

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 17:38:23 / tindastoll5fl

Íslandsmót innan húss

Sæl öll,
Eins og undanfarin ár tekur 5.fl þátt í Íslandsmóti innanhúss og í ár eru það Siglfirðingar sem sjá um mótið fyrir 5. fl. kvenna. Þeir hafa ákveðið að setja mótið á laugardaginn 10.janúar, næstkomandi laugardag, og leikir byrja kl. 9:00 og er mótinu lokið kl. 11:00. Við óskum eftir að fá upplýsingar um þá foreldra sem geta keyrt og þær stúlkur sem fá leyfi til að taka þátt í þessu móti.
Vinsamlega hafið samband við Ingu Jónu í dag eða kvöld og Skúla á morgun frá kl. 12-15. Ef við náum ekki í lið þá þurfum við að afskrá liðið á morgun.
Við fengum að vita þessar upplýsingar um mótið í gær kl. 17 og því miður ráðum við engu um dagsetningu á mótinu eða leikjaniðurröðun þar sem þetta er allt í höndum KSÍ og mótshaldara.
Það er mæting í síðastalagi kl. 7:30 í Vallarhúsið á laugardag en þá verður lagt af stað. Það þarf að koma með 1000 kr. í bensín pening.

Hérna er leikjaniðurröðun:
1 lau. 10. jan. 09 09:00 KS/Leiftur - Tindastóll Siglufjörður      
2 lau. 10. jan. 09 09:15 Þór - KS/Leiftur Siglufjörður      
3 lau. 10. jan. 09 09:30 Tindastóll - Þór Siglufjörður      
4 lau. 10. jan. 09 09:45 Tindastóll - KS/Leiftur Siglufjörður      
5 lau. 10. jan. 09 10:00 KS/Leiftur - Þór Siglufjörður      
6 lau. 10. jan. 09 10:15 Þór - Tindastóll Siglufjörður

Einnig er hægt að sjá hana á síðu KSÍ hérna.

Vona að sem flestir geti mætt!

Kveðja,
Inga Jóna


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.12.2008 15:04:01 / tindastoll5fl

Jólafrí

Þá fer að koma að jólafríi hjá fótboltanum. En það hefst eftir æfinguna í dag, 18.desember. Æfingar byrjar síðan aftur þann 5.janúar á æfingatíma.

Ég vil þakka öllum sem komu að keppa síðasta laugardag, þið stóðuð ykkur ótrúlega vel!! :)

Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári :)

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2008 20:20:38 / tindastoll5fl

Mótið á Akureyri

Það er mæting í Vallarhúsið kl. 9:00 á laugardagsmorgun, 13.des. Þaðan verður farið í Bogann á Akureyri en mótið hefst kl. 11:00 og er búið kl. 14:00. Það kostar 500 kr. á mótið sjálft, en það er leiga á Boganum og létt hressing í lokin í því verði. Þær sem fá far þurfa síðan að greiða 1000 kr. í bensín pening.

Ef það eru frekari spurningar ekki hika við að hringja í mig.

Kveðja,
Inga Jóna

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2008 17:41:06 / tindastoll5fl

Næsta æfing á gervigrasi

Næsta laugardag, 6. des, er Jólahlaðborð í Íþróttahúsinu og húsið því lokað. Æfingin fellur EKKI niður heldur verður hún á gervigrasinu. Æfingin er á sama tíma og venjulega og verður Arnar Skúli með æfinguna. Ég vona að sem flestir komist á æfinguna :)

Ég vil einnig minna á síðustu færslu um mótið á Akureyri.

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2008 16:52:04 / tindastoll5fl

Lítið mót á Akureyri

Þjálfari KA hringdi í mig í dag og spurði hvort við hjá Tindastóli hefðum áhuga að taka þátt í litlu móti í Boganum sem verður haldið laugardaginn 13. desember. Það kostar 500 kr. á stúlku að taka þátt í mótinu og byrjar það kl. 11:00 og er til 14:00 eða 15:00.
Það er talað um að þetta yrðu ca 3 leikir, en hver leikur er 2 x 15 mín.
Innifalið í þessum 500 kr. er lítil hressing í lok móts fyrir stelpurnar.

Vilji þið kommenta hérna með áhuga á þessu móti, hvort þið viljið taka þátt eða ekki, þar sem ég hitti ykkur foreldrana voðalega sjaldan. Ég þarf að láta vita með þátttöku sem fyrst.

Kveðja,
Inga Jóna


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
RSS tengill
Æfingatafla allra yngri flokkanna